Fréttir
Á 174 km hraða í gegnum vinnusvæði
Vel var mætt á morgunfund Vegagerðarinnar um öryggi starfsfólks við vegavinnu sem haldinn var þriðjudaginn 7. maí. Meðal fyrirlesara var Ágúst Jakob Ólafsson, yfirverkstjóri ÍAV, sem greindi frá því að bílar hafi mælst aka á yfir 170 kílómetra hraða í gegnum vinnusvæði þar sem hámarkshraði er merktur 50 km/klst.
Dýpkun í Landeyjahöfn
Eftir erfiðan vetur í Landeyjahöfn
hefur farið fram ítarleg skoðun á því hvernig mögulegt er að efla afköst og
árangur dýpkunar í höfninni. Sú skoðun
hefur leitt í ljós að skipið Álfsnes hentar vel til dýpkunar við þær aðstæður
sem eru uppi í Landeyjahöfn en áætlun um aukna nýtingu hefur einnig verið sett fram, áætlun sem gæti aukið afköst um allt að 50 prósent.