Fréttir
Aktu varlega! – mamma og pabbi vinna hér
Öryggi starfsfólks við vegavinnu verður til umfjöllunar á morgunfundi Vegagerðarinnar þriðjudaginn 7. maí. Þar verður kynnt vitundarátakið; Aktu varlega! – mamma og pabbi vinna hér, flutt stutt erindi um reynslu fólks af því að starfa í nálægð við þunga umferð og Samgöngustofa frumsýnir myndband um akstur gegnum vinnusvæði.
Hjáleiðir vegna vinnu við ný undirgöng undir Breiðholtsbraut frá og með 26. apríl
Vegna vinnu við ný undirgöng undir Breiðholtsbraut við Suðurfell / Jaðarsel verður umferð bíla færð á hjáleið til hliðar við framkvæmdasvæðið. Umferð gangandi færist á hjáleið um gatnamót Breiðholtsbrautar og Jaðarsels. Tekur þetta gildi frá og með 26. apríl næstkomandi.
Viðhald og viðgerðir á brúnni yfir Elliðaár við Árbæjarstíflu
Viðgerðir á brúnni yfir Elliðaár við Árbæjarstíflu hefjast á næstu dögum og áætlað er að verkinu ljúki um miðjan júní. Undirbúningur er hafinn og búið að lækka hámarkshraða um brúna í 30 km/klst. Hjáleið fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur verður ofan brúarinnar við Árbæjarstíflu. Hliðra þarf akreinum og verða göngu- og hjólastígar á brúnni nýttir fyrir bílaumferð. Búast má við umferðartöfum og vegfarendur eru sértaklega beðnir um að sýna tillitssemi og aka með varúð um vinnusvæðið.